Regluleg laun voru að meðaltali 1,2% hærri á fyrsta ársfjórðungi 2015 en á ársfjórðungnum á undan. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Árshækkun frá fyrsta ársfjórðungi 2014 var 5,9% að meðaltali, hækkunin var 4,6% á almennum vinnumarkaði og 9,4% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 7,4% og laun starfsmanna sveitarfélaga um 11,6%.

Á almennum vinnumarkaði var árshækkun frá fyrsta ársfjórðungi 2014 mest hjá tæknum og sérmenntuðu starfsfólki eða um 6,6% en minnst hjá iðnaðarmönnum eða um 3,1%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun sérfræðinga um 5,1%, þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks um 4,9% , skrifstofufólks um 4,7%, verkafólks um 4,5% og stjórnenda um 3,7%.