Laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 4,9% á milli þriðja ársfjórðungs 2008 og 2009. Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun um aðeins 0,8% milli ára. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands.

Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 0,7% hærri á þriðja ársfjórðungi 2009 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 0,8% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 0,4%.

Frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun verkafólks mest eða um 1,6% en laun stjórnenda hækkuðu um 0,1% á sama tímabili. Frá fyrra ári hækkuðu laun verkafólk einnig mest eða um 4,3% en laun stjórnenda lækkuðu hins vegar um 4,1% á sama tímabili samkvæmt mælingum Hagstofunnar.

Laun í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð lækka frá fyrri ársfjórðungi

Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun launa í samgöngum og flutningum 1,9%. Á sama tímabili lækkuðu laun í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð um 0,4%. Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun mest í iðnaði um 3,6 % en laun í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð lækkuðu um 3,0% á sama tímabili.