Með vísan til breytingar á lögum um kjararáð og til úrskurðar kjararáðs frá 27. desember sl. hefur bankaráð Seðlabanka Íslands samþykkt að laun bankastjóra eins og þau voru ákveðin frá 31. maí 2007 skuli lækka um 15% frá 1. janúar 2009.

Ákvörðun þessi gildir til loka árs 2009.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum.

Eftir ákvörðunina verða laun bankastjóra kr. 1.198.105 og formanns bankastjórnar kr. 1.293.953.