Laun starfsmanna Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins og mbl.is, verða lækkuð um 5% um næstu mánaðamót.

Jafnframt verður starfshlutfall einhverra starfsmanna minnkað.

Þetta kom fram í máli Einars Sigurðssonar, forstjóra Árvakurs,  á fjölmennum starfsmannafundi sem var að ljúka en frá þessu er greint á mbl.is

Þar er haft eftir Einari að með þessu verði hægt að koma í veg fyrir fjöldauppsagnir starfsmanna hjá fyrirtækinu.

Þá kemur fram að enn eru viðræður milli áhugasamra fjárfesta, Árvakurs og Glitnis, viðskiptabanka fyrirtækisins, en Einar segir að á þessu stigi sé ekki hægt að gefa upp hvenær þeim ljúki.