Meðaltals árshækkun launa milli ára mældist 9% á fjórða ársfjórðungi 2015. hækkunin var 8,9% á almennum vinnumarkaði og 9,0% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 10,2% og laun starfsmanna sveitarfélaga um 7,6%. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.

Milli fjórðunga hækkuðu laun sérmenntaðs starfsfólks mest en iðnaðarmanna minnst. Mest mældist hækkun reglulegra launa í fjármálaþjónustu eða um 3,9%.

Árshækkun frá fjórða ársfjórðungi 2014 til sama tímabils 2015 var mest hjá verkafólki, eða 11% en minnst hjá stjórnendum, eða 5,9%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks um 9,9%, sérmenntaðs starfsfólks um 9,7%, skrifstofufólks um 9,5% og iðnaðarmanna um 8,0%.