Frá september 2018 til ágúst 2019 voru að jafnaði 18.505 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 265,  eða 1,5% frá síðustu 12 mánuðum þar á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 194.400 einstaklingum laun sem er aukning um 1.400, eða 0,7%, samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr. Hagstofan greinir frá þessu á vef sínum .

Í ágúst 2019 voru um 135.300 launþegar í viðskiptahagkerfinu og hefur þeim fækkað um 5.800, eða 4.1%, samanborið við ágúst 2018. Á sama tímabili hefur launþegum í heild fækkað um 2.600, eða 1,3%. Í helstu atvinnugreinum, sem teljast ekki til viðskiptahagkerfisins, fjölgaði launþegum í „opinberri stjórnsýslu og fræðslustarsemi“ um 2.300, eða 5,1% og í „heilbrigðis- og umönnunarþjónustu“ um 900, eða 5,0%.