Heildarlaunakostnaður hækkaði á bilinu 5,3% til 8,3% á milli ársfjórðunga á þriðja fjórðungi, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Mest var hækkunin í samgöngun en minnst í iðnaði.

Heildarlaunakostnaður á greidda vinnustund dróst saman um 2,1% í iðnaði frá fyrri ársfjórðungi, 2,4% í samgöngum, 5% í byggingarstarfsemi og um 6,5% í verslun, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.

Heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna á greidda stund jókst frá fyrri ársfjórðungi um 5,5% í iðnaði, 0,5% í samgöngum og um 0,2% í byggingarstarfsemi og verslun. Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna eru greiðslur útilokaðar sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili.