Með kjarasamningunum sem gerðir voru við Læknafélag Íslands í síðustu viku mun launakostnaður ríkisins vegna lækna hækka um nær 30%. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu .

Þar kemur einnig fram að heildarkostnaðarauki ríkisins gæti orðið umtalsvert meiri en 30% þegar upp verður staðið, þar sem kjarasamningurinn kveði bæði á um launahækkanir og kerfisbreytingar. Það muni ráðast af því hvaða hagræðing næst með breytingum á vinnufyrirkomulagi.

Stærstur hluti launahækkananna mun koma til framkvæmda á þessu ári og gildir samningurinn til 30. apríl 2017. Hann er afturvirkur frá júnímánuði í fyrra með 3,6% hækkun sem leggst ofan á launagrunninn og hækkar launataflan svo almennt um 10,2% frá seinustu áramótum, að því er fram kemur í Morgunblaðinu.