Launavísitala í febrúar 2007 er 312,3 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 9,8%.

Launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána í apríl 2007 er 6832 stig.