Launavísitala júlímánaðar er 581,9 stig og hækkar um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 11,3%.Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar í dag.

Vísitala kaupmáttar launa í júlí hækkar sömuleiðis um 0,4% og mælist nú 137,2 stig. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar hækkað um 11,6%.