Launavísitala í ágúst 2016 er 583,4 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar.

Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 11,2%.

Kaupmáttur launa lækkar lítillega mili mánaða

Vísitala kaupmáttar launa í ágúst er 137,1 stig og lækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 10,1%.