Launavísitalan í september hækkaði um 1,2% frá fyrri mánuði. Síðustu 12 mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,2%. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni sem birtust í dag.

Kaupmáttur launa hækkaði um 1,6% frá fyrri mánuði en síðustu 12 mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,2%.

Launavísitala er verðvísitala sem byggir á gögnum úr launarannsókn Hagstofu Íslands og sýnir breytingar á verði vinnustundar fyrir fasta samsetningu vinnutíma. Vísitalan tekur mið af breytingum reglulegra launa sem greidd eru fyrir umsaminn vinnutíma hvort sem um er að ræða dagvinnu eða vaktavinnu.