Launavísitala í júlí 2018 er 663,4 stig og hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,3%. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

Frá því í júní hefur kaupmáttur launa hækkað um 0,3% en vísitala kaupmáttar launa í júlí stendur í 149,6 stigum. Síðustu mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3,5%.

Í vísitölu júlímánaðar gætir áhrifa kjarasamninga aðildarfélaga Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem kveðið er á um almennar launahækkanir á bilinu 1,1% til 4,1% þann 1. júlí 2018.