Launavísitala í desember 2016 er 592,2 stig og hækkaði um 0,4 prósentustig frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 9,1 prósentustig. Þetta kemur fram í gögnum Hagstofu Íslands .

Kaupmáttur launa hækkaði einnig milli mánaða. Í desember 2016 er 138,4 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 7,1%.