Launavísitala í ágúst 2014 var 487,4 stig og hækkaði um 0,6% frá því í júlí, að því er fram kemur á vef Hagstofunnar . Launavísitalan hefur hækkað um 6,3% síðastliðna tólf mánuði.

Þá var vísitala kaupmáttar í ágúst 2014 118,2 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitaa kaupmáttar launa hækkað um 3,9%.