Launavísitala í maí mældist 432,9 stig og er það 0,4% hækkun frá í apríl.

Vísitalan hefur hækkað um 11% síðastliðna tólf mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Vísitala kaupmáttar launa hefur hækkað jafn mikið á milli mánaða. Kaupmátturinn jókst hins vegar um 5,3% síðasta ári.