Vísitala launa hækkaði um 0,1% á milli mánaða í júlí. Hún hefur hækkað um 6,0% á síðastliðnum tólf mánuðum, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.

Samkvæmt samantekt Hagstofunnar hækkaði vísitala kaupmáttar launa á sama tíma um 0,8% á milli mánaða í júlí. Vísitalan hefur hækkað um 1,3% síðastliðna tólf mánuði. Miðað við tölurnar hefur dregið nokkuð úr kaupmætti launa síðastliðna tvo mánuði.

Heimild: Hagstofan