Launavísitala í janúar 2016 er 545,0 stig og hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 9,4%. Þetta kemur fram í nýjustu tölum frá Hagstofu Íslands .

Vísitala kaupmáttar launa í janúar 2016 er 130,5 stig og hækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 7,1%.