Launavísitala í maí 2007 er 316,9 stig, en var 314,6 í apríl, hækkunin er því 0,7% á milli mánuða, segir í tilkynningu Hagstofunnar.

Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 9,6%, en vísitalan hefur nú hækkað fimm mánuði í röð.

Launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána í júlí 2007 er 6.932 stig.