Launavísitala í janúar 2007 er 311,5 stig og hækkaði um 3,5% frá fyrri mánuði, segir í tilkynningu Hagstofunnar.

Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 10,1%.

Launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána í mars 2007 er 6.813 stig.