Fram kemur í nýbirtum tölum frá Hagstofunni að launavísitalan í maí hafi hækkað um 0,2% frá fyrri mánuði og hefur hækkað um 4% síðastliðna 12 mánuði.

Vísitala kaupmáttar dróst saman um 0,2% á milli mánuða og hefur lækkað um 3,3% á síðustu 12 mánuðum.