Í tilkynningu frá hagstofunni segir að við útreikning 2. ársfjórðungs launavísitölu þessa árs hafi verið gerð mistök og rangar tölur birtar. Launavísitala fyrir allan markaðinn á 2. ársfjórðungi var birt 139,5, fyrir almenna markaðinn 138,4 og fyrir opinbera starfsmenn og bankamenn 141,1. Leiðréttar tölur eru 140,9 fyrir allan markaðinn, 139,2 fyrir almenna markaðinn og 143,4 fyrir opinbera starfsmenn og bankamenn.