Laundromat Reykjavík ehf., hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta, en félagið rak samnefnt kaffihús í Austurstræti. Nýtt félag keypti reksturinn og rekur staðinn með óbreyttu fyrirkomulagi í dag, að því er segir í frétt á mbl.is .

Hallur Dan Johansen, sem áður rak staðinn, hefur enga aðkomu að nýja félaginu. Hann segir að reksturinn hafi verið mikið skuldsettur. Á síðasta ári hafi mikið átak verið í að greiða niður skuldir, en ekki hafi náðst að greiða skuldir við tollstjóra nægjanlega hratt niður og þá var lítið annað í stöðunni en að skila inn vínveitingaleyfinu og selja reksturinn.

Laundromat var úrskurðað gjaldþrota í desember á síðasta ári, en Hallur segir að áætlanir innan fyrirtækisins hafi ekki gengið eftir og því hafi hann ákveðið að stíga til hliðar. Samkvæmt ársreikningi árið 2012 voru skuldir félagsisn um 96 milljónir,