Launavísitala í mars 2015 er 502,1 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,6%. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands .

Vísitala kaupmáttar launa í mars 2015 er 120,8 stig og lækkaði um 0,8% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 4,0%.