Á tólf mánaða tímabili, frá nóvember til október 2016, greiddu launagreiðendur að meðaltali 178,5 þúsund einstaklingum laun sem er 4,7% aukning samanborið við 12 mánaða tímabil fyrr. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands .

Ef litið er til einstakra atvinnugreina er það ljóst að launþegum hefur fjölgað mjög mikið í ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Launþegum í greinum tengdum sjávarútvegi hefur hins vegar fækkað.

Í október voru 24.600 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði þeim fjölgað um 3.900 eða 19% samanborið við október 2015. Launþegum í byggingarstarfsemi hefur á sama tíma fjölgað um 17% á milli ára.

„Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin,“ er þó tekið fram í frétt Hagstofu Íslands.