Dömufatnaðar- og húsgagnaframleiðandinn Laura Ashley hefur keypt 100.000 hluti í Moss Bros fyrir 46 pens á hlut. Eftir kaupin á Laura Ashley 3,55% hlut í Moss Bros.

Í yfirlýsingu frá Baugi frá því í síðustu viku er lýst áhuga á að kaupa hlut í Moss Bros sem sérhæfir sig í karlmannsklæðnaði af fínni gerðinni.