Húsgagnaverslanakeðjan Laura Ashley Holdings hefur keypt um 3,39% hlut í herrafatakeðjunni Moss Bros, samkvæmt því sem segir í Hálffimm fréttum Kaupþings.

Í vikunni staðfesti Baugur að félagið hefði til skoðunar að bjóða í Moss Bros. Baugur á 37,5% hlut í Unity Investments sem er stærsti hluthafinn í Moss með um 29% eignarhlut.