Fjártæknifyrirtækið Meniga hefur undirritað endursölusamning við ítalska greiðslufyrirtækið Nexi. Nexi er stærsta greiðslufyrirtæki á Ítalíu og leiðandi í fjártæknivörum fyrir banka segir í tilkynningu Meniga. Samningurinn tryggir að lausnir Meniga verði aðgengilegar þeim fjölmörgu ítölsku bönkum sem nýta þjónustu Nexi.

Um 150 ítalskir bankar nýta lausnir Nexi sem þjónustar um 890.000 fyrirtæki og 30 milljónir einstaklinga með 41 milljón greiðslukorta. Árið 2018 voru framkvæmdar 900 milljónir færslna með aðkomu Nexi.

Nexi samsteypan býður upp á fjölbreytt úrval af fjártæknivörum sem styðja við þá stafræna byltingu sem á sér stað hjá bönkum, fjármálafyrirtækjum, tryggingafyrirtækjum, kaupmönnum, fyrirtækjum og í opinberri stjórnsýslu.

„Samstarfið við Meniga bætir gríðarlega vörulínu okkar í þeim stafrænu lausnum sem hjálpa einstaklingum og fyrirtækjum að nýta peningana sína sem best. Það verður því auðveldara fyrir ítalska banka að þróa og styrkja samband sitt við viðskiptavini og mæta þörfum þeirra,“ segir Renato Martini, yfirmaður stafrænnar þróunar hjá Nexi.

Minni og meðalstór fyrirtæki fá stafrænan fjármálastjóra

Lausnum Meniga er ætlað að hjálpa fólki að halda betur utan um heimilisfjármálin sín. Tekjur og útgjöld eru flokkuð sjálfvirkt og fólk fær einföld og öflug verkfæri til að bæta fjárhagslega heilsu sína.

Meniga mun einnig leggja Nexi til fjármálalausnir fyrir minni og meðalstór fyrirtæki. Bankar með tengingu við Nexi geta nú boðið fyrirtækjum „stafrænan fjármálastjóra“ þar sem fjárhagsupplýsingum er stillt upp með einföldum hætti. Hugbúnaðurinn auðveldar allan fyrirtækjarekstur, stjórnun á sjóðsstreymi og færslu bókhalds.

„Við erum hæstánægð með samstarf okkar við Nexi en sérþekking þessara tveggja fyrirtækja mun nýtast bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Bankar sem sækja fjártæknilausnir til Nexi munu nú geta boðið viðskiptavinum margfalt betri þjónustu og innsýn í fjármálin sín,“ segir Georg Lúðvíksson, forstjóri og meðstofnandi Meniga.