Barnasjónvarpsþátturinn Lazy Town, eða Latibær sem er hugarfóstur Magnúsar Scheving, vann í gær bresku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin BAFTA fyrir besta alþjóðlega barnaefnið.

Lazy Town-þátturinn er tekinn upp á Íslandi og er sýndur í Bandaríkjunum, Bretlandi og víðar í Evrópu.