Yfirvöld í Genf hafa lagt hald á glæsilega sportbíla í eigu sonar einræðisherrans Teodoro Obiang Nguema Mbasogo, að andvirði 891 milljóna íslenskra króna eða 8 milljóna dollara. Sonurinn, Teodoro Nguema Obiang Mangue, er varaforseti í Miðbaugs-Gíneu. Þetta kemur fram í frétt The Drive .
Bílarnir voru ellefu talsins og ekki af verri gerðinni. Þetta veru meðal annars einn af sjö Koenigsegg One sem til eru í heiminum, Lamborghini Veneno Roadsters og Bugatti Veyron. Bílarnir eru gífurlega sjaldgæfir og eins og fólk gæti gert sér í hugarlund, gífurlega dýrir.
Talið er líklegt að Mangue hafi reynt að smygla flotanum frá Sviss áður en að bílarnir voru gerðir upptækir. Það er ekki oft sem að sonur einræðisherrans kemst í vestræna fjölmiðla, en þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem að þetta hendir son einræðisherrans, en fyrir um fimm árum, þá var svipaður floti gerður upptækur.
Eins og Viðskiptablaðið hefur áður fjallað um, þá er Miðbaugs-Gínea, eitt af spilltustu ríkjum heims. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch um Miðbaugs-Gíneu hefur spilling, fátækt og kúgun ráðið ríkjum þar í landi undir stjórnartíð forsetans Teodoro Obiang Nguema Mbasongo. Hann hefur verið við völd frá árinu 1979 í þessu smáa Afríkuríki. Kemur fram að gríðarlegar olíulindir þjóðarinnar fari í að fjármagna ríkmannlegan lífstíl fámenns hóps tengdum forsetanum á meðan stór hluti þjóðarinnar lifi við fátækt. Þá er réttarkerfi landsins í molum og fólk oft dæmt í fangelsi án dóms og laga.