Fyrirtækið Nordic Networks stefnir að lagningu sæstrengs milli Íslands, Noregs og Írlands á næsta ári í samstarfi við írska fyrirtækið Aquacomms. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Um er að ræða fjárfestingu sem nemur 75 til 90 milljónum dollara sem jafngildir 9 til 11 milljörðum króna, en verkefnið hér á landi hefur verið leitt af Gísla Hjálmtýssyni, framkvæmdastjóra Thule Investment.