Samtök fyrirækja í sjávaútvegi leggja til að afgreiðslu lagafrumvarps um starfsumhverfi fiskeldis verði frestað. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samtökunum.

„Frumvarp til laga um starfsumhverfi fiskeldis er nú til annarrar umræðu á Alþingi. Fram kom í ræðu framsögumanns atvinnuveganefndar á Alþingi að mikil eindrægni hefði verið í nefndinni um málið og tekist hefði að sætta þar ýmis sjónarmið. Þótt sögð hafi verið samstaða í nefndinni, eru það þó fyrirtækin í landinu sem þurfa að fylgja ákvæðum nýrra laga, þar er veruleikinn fyrir utan veggi Alþingis.," segir í tilkynningunni

„Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi vilja árétta að fiskeldi er að verða veigamikil stoð í íslensku efnahagslífi og mikilvægt er að uppbygging þess verði í sátt við bæði samfélag og umhverfi. Fyrirliggjandi frumvarp þrengir hins vegar mjög að rekstrarskilyrðum fiskeldisfyrirtækja og hamlar verulega þeirri uppbyggingu sem nauðsynleg er í atvinnugreininni svo hún geti til framtíðar skapað góð störf og skilað tekjum til samfélagsins. Margir þýðingarmiklir agnúar eru á frumvarpinu og um áhrif þeirra fást engin svör, hvorki frá ráðherra né þingmönnum. "

Samtökin segja að það þurfi að skapa meiri sát um fiskeldi og nauðsynlegt sé að endurskoða mikilva efnisþætti frumvarpsins. „Af þessum sökum óska Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi þess að afgreiðslu frumvarpsins verði frestað."