Verkefnisstjórn rammaáætlunar hefur lagt fram drög að lokaskýrslu þriðja áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar.

Hún leggur til að fimm kostir fari í orkunýtingarflokk, en þeir eru Skrokkölduvirkjun, Holtavirkjun, Urriðafossvirkjun, Austurengjar, Hverahlíð II, Þverárdalur og Blöndulundur.

Hún leggur til að fjögur svæði fara í verndarflokk með þeim virkjunarkostum sem þeim fylgja. Svæðin og virkjunarkostirnir eru Héraðsvötn (Villinganesvirkjun, Skatastaðavirkjanir C og D), Skjálfandafljót (Fljótshnúksvirkjun og Hrafnabjargavirkjanir A, B og C), Skaftá (Búlandsvirkjun) og Þjórsá vestur (Kjalölduveita).

Í biðflokk fari tveir virkjunarkostir í Hólmsá (við Atley og án miðlunar), Búðartunguvirkjun, Hagavatnsvirkjun, Stóra-Laxá, Trölladyngja, Innstidalur, Hágönguvirkjun, Fremrinámar og Búrfellslundur. Verkefnisstjórnin segir að ekki hafi legið fyrir nægilega gögn til að meta Austurgilsvirkjun á Vestfjörðum og fer sá kostur því einnig í biðflokk.