Þingmenn Sjálfstæðisflokks leggja til í nýju frumvarpi að föst gjöld á eldsneyti verði lækkuð og segja tekjur ríkisins af bensín- og olíugjöldum vera orðnar óeðlilega háar. Ástæðan sé hækkandi eldsneytisverð, sem skilar síhækkandi tekjum af virðisaukaskatti í ríkissjóð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins en það er Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður flokksins, sem er flutningsmaður frumvarpsins.

„Nú kostar bensínlítrinn víðast hvar um 225 krónur og dísilolía 230 krónur. Verðið er komið langt yfir sársaukamörk, flutningskostnaður er kominn upp úr öllu valdi og farinn að hafa áhrif á aðföng, bæði til landsins og út á land,“ segir í tilkynningu.

„Það er því mikið þjóðþrifamál að ná niður bensín- og olíuverði, en skemmst er að minnast mikilla mótmæla vorið 2008,  þegar bensínlítrinn kostaði í kringum 150 krónur.“

Frumvarpið verður lagt fram, þegar þing kemur saman á ný eftir nefndadaga sem haldnir verða í næstu viku.