Þingmenn Framsóknarflokksins og Hreyfingarinnar leggja til að stofnaður verði óháður og gagnsær uppboðsmarkaður fyrir eignir banka og fjármálastofnana, fyrir utan íbúðarhúsnæði, sem hafa verið yfirteknar. Uppsetning og rekstur markaðins verður í höndum hins opinbera, samkvæmt þingsályktunartillögunni.

„Markaðnum er ætlað að auka skilvirkni efnahagslífsins og trúverðugleika íslensks fjármálakerfis, efla traust almennings og stuðla að gagnsærra samfélagi,“ segir í tillögunni sem er á dagskrá Alþingis í dag.

Öllum gert að auglýsa eignir

Segir í greinargerð að ljóst sé að mikil tortryggni ríki í þjóðfélaginu um starfsemi fjármálastofnana og meðferð þeirra eigna sem þær hafa tekið yfir. „Nauðsynlegt er fyrir uppbyggingu samfélagsins að allt endursöluferli þessara eigna sé gert lýðræðislegt og gagnsætt, þar sem allir eigi jafna möguleika til þátttöku og við tilboðsgerð í þær eignir sem fjármálastofnanir ætla að selja á hverjum tíma. Með það að leiðarljósi ætti að auðvelda öllum fjármálastofnunum að innleiða upplýstara og augljósara ferli við sölu eigna þar sem allur vafi yrði tekinn af um að fullnægjandi vinnubrögð séu viðhöfð.“

Samkvæmt tillögunni yrði öllum bönkum og fjármálastofnunum gert að auglýsa yfirteknar eignir sem ætlunin er að selja á þar til gerðum óháðum markaði. Framkvæmd markaðarins yrði á sambærilegu formi og önnur opinber uppboð og færi fram í gegnum sérútbúna vefsíðu. „Á vefsíðunni yrðu birtar allar nauðsynlegar upplýsingar um eignirnar, þar sem öllum gæfist kostur á að bjóða í hverja eign fyrir sig. Hið opinbera mundi stofna og starfrækja uppboðsmarkaðinn. Stofnun slíks markaðar mundi auka jafnræði í samfélaginu og þar með einnig traust og gagnsæi í þjóðfélaginu, auk þess sem uppboðsmarkaðurinn mundi minnka líkur á að óheilbrigðir viðskiptahættir yrðu viðhafðir.

Lagt er til að fyrirkomulag við uppboðin verði eftirfarandi:

  • Auglýsingatími eigna verði að lágmarki tvær vikur.
  • Auglýsingar verði sambærilegar venjubundnum eignaauglýsingum, svo sem fasteignaauglýsingum, og birtar á almennum leitarsíðum.
  • Ef hæstu boðum er hafnað ber fjármálastofnun að gera grein fyrir ákvörðun sinni til opinbers eftirlitsaðila, t.d. Fjármálaeftirlitsins eða Ríkiskaupa.

Helstu kostir opinbers uppboðsmarkaðar af þessu tagi eru að draga úr tækifærum til misnotkunar, koma hreyfingu á fjármagn og viðskipti, stuðla að endurreisn trúverðugleika fjármálakerfisins og fjármálafyrirtækja ásamt því að tryggja jafnræði í sölumeðferð eigna.“