Samtök atvinnulífsins leggjast gegn frumvarpi um náttúrupassa sem þau segja nýjan skatt auk þess sem óvíst sé að tekjur af honum muni skila sér til uppbyggingar innviða ferðaþjónustunnar. Þetta kemur fram í umsögn samtakanna um frumvarpið.

Þar er bent á að kostnaður við að koma skattinum á og eftirlit með honum sé að öllum líkindum vanmetinn. Auk þess sé óljóst hvernig stjórnvaldssektir á erlenda ferðamenn muni skila sér í ríkissjóð.

„Almenn uppbygging innviða og styrking almenns öryggis verði enn um sinn fjármögnuð með beinum framlögum úr ríkissjóði og þá munu sívaxandi tekjur af enn fleiri ferðamönnum koma að góðum notum án þess að gripið sé til enn einnar skattlagningar eins og náttúrupassa,“ segir í umsögninni.

Samtökin segjast jafnframt hafa miklar áhyggjur af alls kyns nýjum sköttum sem ríkisstjórnin undirbúi að leggja á atvinnulíf og almenning í landinu.