Stjórnendur Merlin Entertainments, sem á meðal annars Legoland, hafa áform um að skrá fyrirtækið á markað.

Merlin á 99 skemmtigarða í 22 löndum. Um 54 milljónir heimsækja þá á á hverju ári. Merlin er líklegast annað stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í heiminum á eftir Disney World.

Velta fyrirtækisins er um 1 milljarður punda á ári og er talið að markaðsverðmæti fyrirtækisins sé 3 milljarðar punda.