Kínverjar telja mögulegt að innan sjö ára, eða árið 2020, geti Miðleiðin yfir Norðurpólinn frá Kyrrahafi til Norður-Atlantshafsins orðið farvegur vöruflutninga frá Kína til Evrópu sem svarar til 700 milljarða Bandaríkjadala. Það jafngildir 10% af vöruflutningum þeirra þangað. Þá áætla þeir að Miðleiðin verði fær allt að fjóra mánuði á ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu, en Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, fundaði nýlega með yfirmanni kínversku heimskautastofnunarinnar, Huigen Yang.

Í tilkynningunni er haft eftir Össuri að það skipti Ísland gríðarmiklu máli að Kínverjar skuli vera sammála um gildi Miðleiðarinnar, því hún gæti bæði haft mjög mikil efnahagsleg áhrif á Íslandi, en ekki síður stóraukið geópólitiskt vægi Íslands á nýjan leik, bæði gagnvart Evrópu, Ameríku og Asíu. „Við höfum stöðugt haldið því fram að þessi leið sé heppilegust vegna ýmissa ástæðna, ekki síst strauma og ísþykktar, og það hefur mjög mikla þýðingu fyrir Ísland að stórveldið Kína sé á sama máli,” segir Össur.

Þeir ræddu m.a. þá möguleika sem felast í siglingum yfir Norðurpól í kjölfar bráðnunar ísþekju Norður-Íshafsins. Hún styttir leiðina milli hafna við Kyrrahaf og Atlantshaf um allt að 40%. Með notkun Miðleiðarinnar geta opnast möguleikar á alþjóðlegri vöruhöfn á Íslandi.