Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur sent frá sér athugasemd vegna umfjöllun fjölmiðla um málefni kísilmálmvers United Silicon. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að fram hafi komið misskilningur þess efnis að ívilnanasamningur fyrirtækisins við ríkið hafi verið úrskurðaður ólöglegur af Eftirlitsstofnun EFTA. Að sögn ráðuneytisins er sú fullyrðing ekki á rökum reist.

Ráðuneytið bendir á að sá samningur sem Eftirlitsstofnun EFTA sagði vera ólögmætan kom aldrei til framkvæmda. Hann var gerður við Íslenska kísilfélagið ehf., Tomahawk Development á Íslandi ehf. svo og GSM Enterprises LLC og var undirritaður 17. febrúar 2011. Það fjárfestingarverkefni laut að því að reisa og reka 50 þúsund tonna kísilver í Helguvík. Fjárfestingarverkefnið varð aldrei að veruleika og framkvæmdir hófust ekki. Fjárfestingarsamningurinn var því felldur niður. Ekki voru veittar neinar ívilnanir á grundvelli fjárfestingarsamningsins og því ekki forsendur til að krefjast endurheimtu.

Aftur á móti hafi þann 9. apríl 2014 var aftur á móti undirritaður fjárfestingarsamningur milli ríkisstjórnar Íslands og United Silicon hf. um byggingu og rekstur 21 þúsund tonna kísilvers í Helguvík á Reykjanesi. Sá samningur hefur lagastoð í rammalöggjöf um ríkisstyrki sem samþykkt var á Alþingi í júní 2015. „Sá samningur er í gildi og var hann kynntur fyrir Eftirlitsstofnun EFTA áður en hann kom til framkvæmda,“ segir í tilkynningunni.

Líkt og fjallað var um fyrr í dag vill þingflokksformaður Viðreisnar að Ríkisendurskoðun rannsaki hvernig staðið var að ákvörðun um starfsleyfi fyrir kísilmálmver United Silicon. Þar nefndi hún meðal annars fyrrgreindan ívilnunarsamning.