Í úttekt Viðskiptablaðsins í síðustu viku og í dálkinum Huginn & Muninn sagði að hjónin Magnús Orri Schram & Herdís Hallmarsdóttir hafi greitt auðlegðarskatt. Var hrein eign þeirra sögð vera um 154 milljónir króna, samkvæmt álagningarskrám. Hið rétta er að hjónin greiddu ekki auðlegðarskatt fyrir árið 2012. Beðist er velvirðingar á mistökunum.