Velferðarráðuneytið sendi frá sér fréttatilkynningu þess efnis að: „hvorki velferðarráðuneytið né aðrir aðilar hér á landi veita veita fyrirtækjum einkaleyfi fyrir sölu á lyfjum, líkt og lækningaforstjóri SÁÁ heldur ranglega fram í frétt í Fréttablaðinu í dag í umfjöllun um verð á B1 vítamíni í sprautuformi. Lyfsala er háð ströngum reglum um markaðsleyfi sem stjórnvöld eru bundin af.“

Þessi fréttatilkynning birtist í kjölfar ummæla Þórarins Tyrfingssonar lækningaforstjóra SÁÁ sem „heldur því fram í Fréttablaðinu í dag að ríkið hafi veitt einu fyrirtæki einkaleyfi á B-vítamínmarkaði á Íslandi. Afleiðingin sé sú að Vogur þurfi nú að greiða 47 sinnum hærra verð fyrir lyfið en áður og segir Þórarinn þetta vera „í grunninn klúður úr heilbrigðisráðuneytinu.“

Velferðarráðuneytið fer með yfirstjórn lyfjamála hér á landi í samræmi við lyfjalög nr. 93/1994 en markmið þeirra er „að tryggja landsmönnum nægilegt framboð af nauðsynlegum lyfjum með sem hagkvæmastri dreifingu þeirra á grundvelli eðlilegrar samkeppni og í samræmi við þær reglur sem gilda á hinu Evrópska efnahagssvæði [eða samkvæmt stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu].“

Þar sem um alvarlegar og rangar staðhæfingar er að ræða vill velferðarráðuneytið koma eftirfarandi upplýsingum um staðreyndir málsins á framfæri:

  • Lögbundið er að lyf skuli ekki seld hér á landi nema þau hafi áður fengið markaðsleyfi sem Lyfjastofnun veitir að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Við sérstakar aðstæður getur Lyfjastofnun veitt undanþágu frá markaðsleyfi fyrir sölu lyfs, ef enginn aðili hefur sótt um markaðsleyfi en nauðsynlegt að tryggja framboð lyfs með þá verkun sem um ræðir.
  • B-vítamín stungulyfið sem notað hefur verið á Vogi á síðustu misserum er dæmi um lyf sem selt hefur verið án markaðsleyfis á grundvelli undanþágu.
  • Icepharma (fyrir hönd Abcur AB) sótti á síðasta ári um markaðsleyfi fyrir lyfið Tiacur (B1 vítamín, stungulyf) og var það skráð í lyfjaverðskrána í september sama ár. Þar með var ekki lengur heimilt að selja fyrrnefnt lyf þar sem forsenda fyrir undanþágunni var brostin.
  • Annars staðar á norðurlöndunum (að Finnlandi undanskyldu) er Tiacur eina B1 vítamín stungulyfið í lyfjaverðskrám.  Meðalverðið á norðurlöndunum er 22.855 kr. en hér á landi kostar það 20.097 kr. (miðað við 1. sept sl.).“