Ísleifur Örn Guðmundsson hefur verið ráðinn sölustjóri gæða- og innkaupalausna hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo og verður hlutverk hans að stýra og efla sölustarf deildarinnar.

„Það eru spennandi tímar fram undan í gæðastjórnun þegar öll fyrirtæki með 25 eða fleiri í starfi þurfa að fá vottun eða staðfestingu í jafnlaunamálum fyrir lok þessa árs,“ er haft eftir Ísleifi í fréttatilkynningu.

Hann hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdarstjóri innflutningsfyrirtækisins Habitus. Þá hefur Ísleifur einnig starfað sem sölu- og markaðstjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Safari Quads og tekið þátt í hinum ýmsu verkefnum tengt stjórnun og stefnumótun. Hann stundaði og lauk BS gráðu í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun frá University of Alabama in Huntsville í Bandaríkjunum og Háskóla Íslands.

Ísleifur er tveggja barna faðir og á að baki fótboltaferil með ÍA og í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.

„Við erum gríðarlega spennt fyrir því að fá Ísleif í okkar teymi enda spennandi verkefni framundan við það að hjálpa fyrirtækjum við jafnlaunavottunarferlið með Justly Pay,“ segir Kristín Hrefna Halldórsdóttir, forstöðumaður gæða- og innkaupalausna hjá Origo.