Leifur B. Dagfinnsson stjórnarformaður og stofnandi framleiðslufyrirtækisins True North var launahæstur meðal auglýsingafólks landsins í fyrra en tekjur hans námu tæplega 1,9 milljónum króna á mánuði, samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Í blaðinu má finna upplýsingar um tekjur ríflega 3.700 Íslendinga. Að þessu sinnir eru tveir nýir flokkar í blaðinu. Annars vegar yfir tekjur áhrifavalda á samfélagsmiðlum og hins vegar fasteignasala.

Fimm tekjuhæsta auglýsingafólkið árið 2018:

  1. Leifur B. Dagfinnsson, True North 1,885 milljónir króna
  2. Bragi Valdimar Skúlason, Brandenburg 1,806 milljónir króna
  3. Hjalti Jónsson, frkvstj. Ísl.auglýsingast. 1,618 milljónir króna
  4. William Oliver Luckett, stjórnarform. Efnis 1,429 milljónir króna
  5. Heiða Kristín Helgadóttir, frkvstj. Efnis 1,386 milljónir króna

Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2018 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.

Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í morgun. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér .