Að sögn Kristjáns Guy Burgess, framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar, leigir Samfylkingin 230 fermetra á 2. hæð á Hallveigarstíg 1. Fyrir það greiddi flokkurinn 332.00 krónur á mánuði árið 2015. Kemur þetta fram í frétt Morgunblaðsins .

Að mati Kristjáns Gunnarssonar, forstjóra fasteignafélagsins Regins, ætti leiguverð fyrir hvern fermetra fyrir „þessa eign“ að vera 1.700 -2000 kr. Samkvæmt því ættu leigugreiðslur að vera á bilinu 391-460 þúsund kr.

Í svari við fyrirspurn í Morgunblaðsins segir Kristján Guy að inni í leiguverðinu séu, auk húsaleigu, greiðsla fyrir rekstur sameignar, ræstingu og bílastæði auk greiðslu til Orkuveitu Reykjavíkur.

Árni Páll Árnason, formaður flokksins, hafði áður sagt að flokkurinn greiddi markaðsleigu fyrir húsnæðið.