Út er komin mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs en hún gefur meðal annars vísbendingar um að leigumarkaðurinn fari minnkandi.

Í skýrslunni kemur fram að vísbendingar séu um að færri séu nú á leigumarkaði en áður, að ekki hafi verið jafn lágt hlutfall íbúðaviðskipta undir ásettu verði síðan janúar 2016, að mánaðarleg fjárhæð nýrra íbúðalána haldi áfram að vaxa og að nýjar íbúðir í fjölbýli eru stærri en áður.

Ný mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs hefur verið birt. Þar kemur meðal annars fram að vísbendingar eru um að leigumarkaður fari minnkandi samkvæmt nýrri spurningakönnun. Í skýrslunni kemur einnig fram að hlutfall þeirra viðskipta með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu sem eiga sér stað undir ásettu verði hefur aukist upp á síðkastið.

Í nóvember seldust 78% íbúða á höfuðborgarsvæðinu undir ásettu verði, en jafn hátt hlutfall hefur ekki sést síðan í upphafi árs 2016. Aukin ró virðist því vera að færast yfir fasteignamarkaðinn eftir mikla uppsveiflu á fyrri hluta síðasta árs. Vakin er athygli á því að vöxtur var í raunvirði íbúðalána til heimila á nýliðnu ári og hefur 12 mánaða taktur útlánaaukningarinnar farið vaxandi.

Greitt aðgengi að lánsfé með aukinni aðkomu lífeyrissjóða, hækkun veðhlutfalla, lækkun vaxta og hækkun íbúðaverðs hafa haft áhrif á þá þróun. Í skýrslunni má einnig finna umfjöllun um byggingarmarkaðinn þar sem stærðum og gerðum nýbygginga eru gerð skil ásamt ítarlegri umfjöllun um stöðu eignasafns Íbúðalánasjóðs.