Alls var 268 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í desember sl., sem tæplega 40% fækkun á milli mánaða. Leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 19,5% á milli ára á síðasta ári.

Þá var 429 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í desember sem þýðir fækkun samninga um  tæp 38% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands. Samningum á landinu öllu fækkaði um 16,2% á milli ára árið 2012.

Á myndinni hér að neðan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 3 ár. Þar sést hvernig þinglýstum leigusamningum hefur fækkað töluvert frá því að fjöldi þeirra náði hámarki haustið 2010. Líkt síðustu ár tók fjöldi leigusamninga kipp upp á við í vor en ekkert í námunda við það sem var fyrir ár og alltaf leitar fjöldinn niður á við með haustinu. Þá hefur fjöldi leigusamninga í einum mánuði ekki verið jafn lítill og frá því í maí 2008.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum í desember eða 60 samningum. Þá var 40 samningum þinglýst á Suðurlandi, 25 samningum á Norðurlandi og 22 samningum á Vesturlandi. Loks var 10 samningum þinglýst á Austurlandi og 3 samningum á Vestfjörðum.

Í fyrra, árið 2012, var alls 9.083 samningum þinglýst á landinu öllu, samanborið við 9.950 samning árið 2011 og 10.000 samning árið 2010. Þar af var um 5.700 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu, samanborið við 6.350 samninga árið 2011 og 6.850 árið 2010.

© vb.is (vb.is)