Alls var 406 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í febrúar sl., sem er um 24% fækkun samninga á milli mánaða. Leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu hefur þá fækkað um tæp 16% á milli ára.

Þá var 661 leigusamning þinglýst á landinu öllu í febrúar sem þýðir fækkun samninga um tæp 24% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Leigusamningum fjölgaði í janúar, í fyrsta sinn í fjóra mánuði, en fækkar nú aftur sem fyrr segir. Í lok síðasta árs höfðu samningar ekki verið færri síðan í júní 2008, hvort sem er á höfuðborgarsvæðinu eða á landsvísu.

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár þar sem sést hvernig samningum hefur fjölgað nokkuð yfir sumartímann en snarfækkað aftur þegar líður á veturinn. Þá hefur fjöldi leigusamninga tekið kipp í janúar en fækkað aftur eftir því sem líður á árið.

Ef horft er á landið í heild þá var sem fyrr segir 661 leigusamning þinglýst á landinu öllu í febrúar sl., samanborið við 868 samninga í janúar. Samningum í febrúar fækkar um tæp 4% á milli ára á landsvísu.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á suðurnesjum eða 93 samningum. Þá var 69 samningum þinglýst á Norðurlandi, 45 samningum á Vesturlandi og 35 samningum á Suðurlandi.

Þá var 6 samningum þinglýst á Vestfjörðum og 7 samningum þinglýst á Austurlandi.

Á síðasta ári var um 9..950 samningum þinglýst á landinu öllu, samanborið við tæplega 10.00 samninga árið 2010. Þar af var um 6.350 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu, samanborið við um 6.850 samninga árið 2010. Það sem af er þessu ári hefur um 1.530 samningum verið þinglýst á landinu öllu, þar af 943 samningum á höfuðborgarsvæðinu.