Alls var 416 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í apríl sl., sem um 8,3% fjölgun samninga á milli mánaða og 19% fjölgun á milli ára samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Þetta er í fyrsta sinn í þrjá mánuði sem leigusamningum fjölgar á höfuðborgarsvæðinu en þeim hafði fjölgað tölvuert í janúar, þegar fjöldi samninga var sá mesti í einum mánuði frá því í september 2011, en fækkað aftur í febrúar og mars.

Alls var 648 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í apríl sem er svipaður fjöldi og í mars en um 29% fjölgun á milli ára.

Á myndinni hér að neðan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 3 ár. Þar sést hvernig þinglýstum leigusamningum hefur iðulega fjölgað í byrjun árs en fækkað jafn óðum næstu mánuði á eftir. Þróunin nú er því ekki frábrugðin því sem verið hefur síðustu ár. Svo virðist sem fjöldi leigusamninga taki síðan kipp upp á við á sumrin.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum í apríl eða 97 samningum. Þá var 48 samningum þinglýst á Norðurlandi, 40 samningum á Suðurlandi og 27 samningum á Vesturlandi. Loks var 13 samningum þinglýst á Austurlandi og 7 samningum á Vestfjörðum.

Alls var 9.083 samningum þinglýst á landinu öllu í fyrra, samanborið við um 9.950 samninga árið 2011 og um 10.400 samningum árið 2010. Þar af var um 5.700 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu.

Það sem af er þessu ári hefur um 2.900 samningum verið þinglýst á landinu öllu, þar af um 1.850 samningum á höfuðborgarsvæðinu og um 390 samningum á Suðurnesjum.

© vb.is (vb.is)