Þjóðskrá Íslands tók saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga og kaupsamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í júní 2014. Heildarfjöldi leigusamninga á landinu voru 819 í júní 2014 og fjölgar þeim um 12,8% frá maí 2014 og um 8,3% frá júní 2013.
Fjölgun hefur orðið í leigusamningum milli maí og júní 2014 á öllum landshlutum nema Vesturlandi þar sem varð fækkun um 3,6% og á Suðurlandi þar sem enginn breyting varð. Fjölgun hefur einnig orðið í leigusamningum milli áranna 2013 og 2014 á öllum landshlutum nema Vesturlandi þar sem varð 32,5% fækkun.