Alls var 537 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í janúar sl., sem er um 61% fjölgun samninga á milli mánaða. Leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu hefur þó fækkað um tæp 7% á milli ára.

Þá var 868 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í janúar sem þýðir fjölgun samninga um tæp 70% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Þetta er í fyrsta sinn í fjóra mánuði sem leigusamningum fjölgar á milli mánaða en þeir eru þó mun færri en þeir voru í ágúst og september sl. Í lok síðasta árs höfðu samningar ekki verið færri síðan í júní 2008, hvort sem er á höfuðborgarsvæðinu eða á landsvísu.

© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár þar sem sést hvernig samningum hefur fjölgað nokkuð yfir sumartímann en snarfækkað aftur þegar líður á veturinn. Líkt og í fyrra fjölgar samningum þó nokkuð í janúar. Í fyrra fækkaði þeim þó aftur þegar líða fór á vorið.

Ef horft er á landið í heild þá var sem fyrr segir 868 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í janúar sl., samanborið við 512 samninga í desember. Samningum í janúar fækkar um tæp 2% á milli ára á landsvísu.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Norðurlandi eða 116 samningum. Þá var 91 samning þinglýst á Suðurnesjum, 57 samningum á Suðurlandi og 52 samning á Vesturlandi.

Þá var4 samningum þinglýst á Vestfjörðum og 11 samningum þinglýst á Austurlandi.

Á síðasta ári var um 9..950 samningum þinglýst á landinu öllu, samanborið við tæplega 10.00 samninga árið 2010. Þar af var um 6.350 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu, samanborið við um 6.850 samninga árið 2010.